|
Var Komintern andvígt stofnun Sósíalistaflokksins? |
|
|
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor við stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands:Texti greinarinnar í heild sinni (pdf)
Útdráttur
Jón Ólafsson heimspekingur telur sig hafa fundið heimild fyrir því, að Komintern hafi verið
andvígt stofnun Sósíalistaflokksins. Hún er minnisblað eins starfsmanns Kominterns frá
sumrinu 1938. Þór Whitehead sagnfræðingur andmælir því með þeim rökum, að þetta hafi
ekki verið opinber samþykkt Kominterns, auk þess sem allar aðrar heimildir bendi til þess, að
stofnunin hafi verið gerð með samþykki Kominterns. Fram er komin ný heimild, heillaóskir í
bréfi frá Michal Wolf, öðrum ritara Alþjóðasambands ungra kommúnista og varamanni í
framkvæmdastjórn Kominterns, til Æskulýðsfylkingarinnar við stofnun hennar haustið
1938. Wolf varð síðar varnarmálaráðherra Ungverjalands undir nafninu Mihály Farkas
og var eindreginn stalínisti. Þessi heimild eyðir öllum vafa um það, að stofnun Sósíalistaflokksins
var gerð með samþykki Kominterns. |