Staðlar og stjórnsýsla: Framkvæmd Nýju aðferðarinnar á Íslandi Prenta Senda



Guðrún Rögnvaldardóttir MPA

Leiðbeinandi: Dr. Baldur Þórhallsson

Útskrift frá HÍ vorið 2006

Útdráttur

Í þessari ritgerð er skoðað hvernig íslensk stjórnvöld hafa staðið að framkvæmd á hinni svokölluðu „Nýju aðferð við tæknilega samræmingu og staðla“, sem ráðherraráð Evrópusambandsins samþykkti árið 1985 til að draga úr tæknilegum viðskiptahindrunum á innri markaði sambandsins. Markmið Nýju aðferðarinnar er að vara, sem uppfyllir kröfur tiltekinna samræmdra staðla, njóti frjálsrar markaðssetningar á öllum sameiginlega evrópska markaðinum.

Kannað var hvernig hver og ein þeirra 22 tilskipana ESB sem falla undir Nýju aðferðina er innleidd í íslenskan rétt. Með samanburði á textum tilskipana og textum íslenskra laga og reglugerða var rannsakað hvort þau ákvæði tilskipana sem varða vísun til samræmdra staðla skila sér inn í íslensku réttarheimildina og hvort birting slíkra tilvísana er fullnægjandi.

Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að framkvæmdinni er í nær öllum tilvikum ábótavant, annaðhvort vegna þess að réttarheimild er ekki fullnægjandi eða vegna þess að fyrirmælum reglugerða um birtingu vísana til staðla hefur ekki verið sinnt. Þetta leiðir til þess að markmið Nýju aðferðarinnar næst aðeins í undantekningartilvikum á Íslandi. Framleiðandi vöru, sem uppfyllir allar kröfur viðeigandi íslenskra staðla, getur ekki treyst því að vara hans njóti óhindraðrar markaðssetningar á Íslandi, þar sem ótvíræðar réttarheimildir skortir til þess að gera megi ráð fyrir að varan uppfylli grunnkröfur viðkomandi tilskipana.

Hugsanlegar ástæður og mögulegar afleiðingar þessara annmarka á framkvæmd Nýju aðferðarinnar eru ræddar, m.a. með hliðsjón af kenningum um aðlögun íslenskrar stjórnsýslu að EES-samningnum og úttektum á frammistöðu stjórnsýslunnar á þessu sviði. Að lokum eru hugmyndir um tillögur til úrbóta settar fram.

< Fyrri   Næst >
Útgefandi: Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Odda v. Suðurgötu, 101 R. Sími (354) 525-4928 http://www.stjornsyslustofnun.hi.is