Rannsóknarverkefnið um íbúalýðræði sem unnið er í samstarfi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, Sambands Íslenskra sveitarfélaga og Landsbanka Íslands, miðar að því að draga saman lærdóma
af deilum undanfarinna ára í sveitarfélögum á Íslandi. Farið verður
yfir deilur í öllum sveitarfélögum á Íslandi með yfir tvö þúsund íbúa
undanfarin fimm til tíu ár. Þetta eru 22 sveitarfélög en í þeim búa 89%
landamanna. Fjölþætt gögn verða skoðuð og viðtöl tekin við
sveitarstjórnarfólk og aðra sem komið hafa nálægt slíkum deilum. Auk
þess verður framkvæmd mjög umfangsmikil könnun meðal íbúa
sveitarfélaganna. Á rannsókninni ætti að mega byggja lærdóma og jafnvel
þróa aðferðafræði sem gagnast getur sveitarfélögunum í framtíðinni við
úrlausn deilumála. Sjá nánar um rannsóknina og starfsfólk hennar í undirsíðu hér til vinstri.
|
|
|
|
|